- ISK
- EUR
- DKK
- NOK
- USD
- GBP
Skilmálar Skór.is
Almennt
Skor.is er verslun með fjölbreytt úrval af skóm fyrir dömur, herra og börn. Það er einfalt og hagkvæmt ad versla hjá okkur. Þú byrjar á því að finna þá skó sem þú óskar eftir, velur stærð og lit og setur í körfu. Pöntunin er komin í gegn um leið og greiðsla hefur borist fyrir það sem pantað var. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu í netpósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Skor.is. Sé vara uppseld mun þér berast skilaboð með netpósti hið fyrsta og þér endurgreitt að fullu sama dag.
Hafa samband
Sendið okkur línu á skor@skor.is
Netverð (verð)
Öll verð í netversluninni eru með 25,5% virðisaukaskatti(VSK). Vinsamlegast athugaðu að verðið í netversluninni getur breyst án fyrirvara vegna rangra verðupplýsinga eða prentvilla.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Afhending og Sendingarkostnaður
Það kostar 998.- að fá pantanir sendar heim að dyrum hvert á land sem er. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Pakkar eru sendir með Póstinum heim að dyrum eða á það pósthús sem næst er kaupanda. Mögulegt er að fá vörur sendar á annað heimilisfang en kaupandans t.d. ef um gjöf er að ræða. Ef pakki er sendur á vinnustað er mikilvægt að fram komi nafn vinnustaðarins og "berist til" aðilans sem pantar hefur. Þeir pakkar eru bornir út um miðjan dag. Um leið og Pósturinn fær pöntun þína í hendurnar, færðu sms með staðfestingu um að þinn pakki verði væntanlegur í kvöld eða á morgun.
Það tekur í flestum tilvikum 2-4 daga að fá vöruna í hendur eftir að pöntun er gerð en við sendum ekki pantanir á laugardögum og sunnudögum.
Greiðslumöguleikar
Við bjóðum upp á að greiða með millifærslu. Þá hefur greiðandi 12 tíma til að ganga frá greiðslu í gegnum bankann frá því að pöntun er gerð. Sé greiðsla ekki móttekin innan þessa tíma mun pöntunin sjálfkrafa eyðast. Þegar þú ætlar að ganga frá greiðslu með þessum hætti velur þú millifærslu og þá koma upp allar þær upplýsingar sem að þú þarft að nota.
Einnig er hægt að greiða með greiðslukortum frá Visa, Eurocard / Mastercard, Amex, JCB Visa Dankort og Diners club. Þegar þú hefur valið þær vörur sem þú vilt versla, þá setur þú þær í körfuna og fyllir síðan út persónulegar upplýsingar þínar. Því næst velur þú greiðslumátann, skráir inn númer og gildistíma greiðslukortsins.
Síðan 3ja stafa öryggisnúmer sem er á bakhlið kortsins. Gakktu úr skugga um að allar upplýsingar séu réttar áður en þú smellir á að ljúka kaupum. Fjárhæðin gjaldfærist sama dag og pöntunin er send til viðskiptavinarins. Greiðslan fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu VALITORS.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Við erum með 14 daga endurgreiðslufrest. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Greiðslukvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt eftir að varan er móttekin. Endursending vara er á ábyrgð og kostnað kaupanda, nema viðskiptavinur hafi fengið rangar/skemmdar vörur afhentar. Hverri vöru fylgir skilaseðill og þar kemur fram í hvaða verslunum er boðið upp á skil. Verslanirnar sem að um er að ræða eru Kaupfélagið, Ecco búðirnar, Skór.is og Steinar Waage. Ef þið viljið skila/skipta vörum eða hafið fengið rangar vörur afhentar, er ykkur velkomið að hafa samband við skor@skor.is
Höfundaréttur og vörumerki
Allt efni á vefsvæði Skor.is s.s. texti, grafík, lógó og myndir eru eign Skor.is. Önnur notkun, t.d. afritun, breytingar, dreifing, sending, endurdreifing eða önnur notkun er bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Skor.is.
Skor.is er skráð vörumerki í eigu S4S og má ekki nota í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Skor.is.