- ISK
- EUR
- DKK
- NOK
- USD
- GBP
Netverslunin Skór.is
Við færum þér skóveröldina heim í stofu!
Skor.is veitir nú Íslendingum, sem og öðrum, aðgengi að fjölbreyttu skóúrvali, óháð búsetu, allt árið um kring.
Við erum Skor.is, Kaupfélagið, Ecco búðirnar, Steinar Waage og Toppskórinn.

Skor.is er ein stærsta skóverslun á Íslandi þar sem þú getur verslað skófatnað á alla fjölskylduna á einu augabragði, þegar þér hentar og á þínum hraða!
Markmiðið er að bjóða uppá sem fjölbreyttasta vöruúrvalið af skóm og fylgihlutum í vefverslunarumhverfi sem er bæði þægilegt í notkun og auðvelt yfirferðar.Við lítum svo á að með þessum verslunarhætti geti viðskiptavinir okkar bæði sparað sér tíma og fyrirhöfn og vonum við að þetta verði til þess að auðvelda viðskiptavinum okkar lífið til framtíðar.
Þær vörur sem þú kaupir í gegnum netið færðu sendar heim að dyrum.Tryggt er að vörurnar berist með öruggum og skjótum hætti til þín eftir vörukaup.
Sjá nánar: skilmálar/afhending
Ert þú með frábæra uppástungu eða ábendingu? Sendu okkur tölvupóst á netfangið skor@skor.is
Netklúbbur Skór.is
Ef þú skráir þig í Netklúbbinn ertu kominn í hóp þeirra fyrstu sem fá send til sín tilboð þegar um slíkt er að ræða.
Við gerum ráð fyrir að vera með að lágmarki eitt tilboð í hverjum mánuði.
Skráðu þig í klúbbinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan!